Í dag fórum við með þá Hafrafells el Gringo og Hafrafells Ares í gönguferð. Fengu þeir að hlaupa um og leika sér frjálst, sulla í pollum og hlaupa í drullu. Tókum við nokkrar myndir af þeim bræðrum. Þessir rakkar eru ennþá lausir hjá okkur. Áhugasamir endilega hafið samband.
19. júl. 2013
13. júl. 2013
Hafrafells el Gringo (laus)
Gringo er heldur betur farinn að
sýna veiðitakta og er mjög svo athugull á umhverfið í kringum sig. Hann
fylgist mjög grant með því hvað eldri hundarnir eru að gera og reynir
svo að gera eins.
Gringo tekur stand, hann er með mikið veiðieðli sem hann er ekki alveg búinn að fatta hvað hann eigi að gera við, hann tekur stand á systkyni sín, á flugur og á rjúpnavængi.
Gringo hefur að geyma frábæran perónuleka, honum finnst mjög gaman að bíta í vatnsbunu sem kemur úr garðslöngunni ;) Gringo og synir okkar eru mjög góðir vinir og er Gringo mjög blíður og góður við þá.
Fórum í dag með hann í stuttar æfingar og hér er smá myndasyrpa frá því.
Gringo á standi
el Gringo er mjög rólegur við uppflug ;)
Hérna er stóra systir með honum á samstandi.
10. júl. 2013
2 rakkar ennþá lausir
Við eigum ennþá eftir 2 rakka. Nöfnin þeirra eru Hafrafells el Gringo og Hafrafells Ares. Þessir rakkar búa yfir miklum veiðieiginleikum. Ef skoðað eru ættir þessara hvolpa þá er móðir veiðimeistari og eru margir meistarar á bak við hana. Faðir þessara hvolpa er innfluttur úr eðallínum frá Frakklandi sem hefur einnig marga meistara bak við sig. Ablos hefur gotið af sér framúrskarandi afkvæmi sem verður erfitt að jafna. Afkvæmi Ablosar hafa fengið margar 1. einkanir og einnig hefur hann gotið af sér veiðimeistara. Báðir foreldrar eru HD fri. Þetta gerist varla betra.
Hér eru ættir hvolpana og eins og sést þá eru mjög margir meistarar (rauðu stafirnir eru meistara titlar)
| Hafrafells Pedigree of puppies born 15 mars 2013 | ||||
|---|---|---|---|---|
Ablos de L'Echo de la Foret | Pablos du Val Clair | Magic de Kerfeuil | ||
| Nubie Du Val Clair | ||||
Spana de L'Echo de la foret | Radentis Despana | |||
Nirtie de L'Echo de la foret | ||||
Snjófjalla Dís | Hattbekken's Trym | Tarpan's Bruno Cappelli | ||
| Stokkmarka´s Roya | ||||
Spjeldberget's Why-T | Nordvestjyden`s Martell | |||
| Bjørktun Lady in Red | ||||
| This pedigree was generated by | ||||
Hér eru svo myndir af Hafrafells el Gringo og Hafrafells Ares
Hafrafells Ares
Hafrafells Ares
Hafrafells el Gringo
Hafrafells el Gringo
Hafrafells el Gringo
Hafrafells Ares
Hafrafells Ares
Hafrafells el Gringo
27. jún. 2013
Hafrafells Hera
Þessi fallega og efnilega tík er laus til afhendingar og hefur hún fengið nafnið Hafrafells Hera í ættbók. Þetta er eina tíkin sem við eigum eftir. Hera er búinn að sýna okkur að hún er gott efni í góðan veiðihund, enda
segjir ættbókin hennar að hún lofar mjög góðu ef marka má líka aðra
hunda úr þessum línum, sem eru að sanna sig sem framúrskarandi
veiðihunda. Hera er með mjög gott geðslag. Hera hefur að geyma frábæran karakter. Hún er alltaf til í leik og æfingar.
19. jún. 2013
Hafrafells Ares
Við eigum lausann rakka til afhendingar strax. Hann hefur fengið nafnið Hafrafells Ares í ættbók. Ares er tricolor. Þessi flotti rakki hefur að geyma svakalegann flottann karakter hann spáir mikið í umhverfið í kringum sig. Ares að sjálfsögðu sömu ættbók og hinir hvolparnir og er hún ekkert slor. Ares er klárlega einnig flott efni í mjög góðann veiðihund. Ares er stæðsti rakkin í gotinu og er hann rosalega vel byggður. Geðslagið í honum er líka svakalega got. Ares er mjög virkur og er alltaf til í leik.
15. jún. 2013
Hafrafells Diana
Hafrafells Diana
Þessi fallega og efnilega tík er laus til afhendingar og hefur hún fengið nafnið Hafrafells Diana í ættbók.
Diana er búinn að sýna okkur að hún er gott efni í góðan veiðihund, enda segjir ættbókin hennar að hún lofar mjög góðu ef marka má líka aðra hunda úr þessum línum, sem eru að sanna sig sem framúrskarandi veiðihunda.
Eins og myndirnar sýna er hún alveg óhrædd við að synda sem getur ekki annað en talist mjög gott í svona ungum hvolpi.
Geðslagið í henni er mjög gott. Hún er róleg og mjög opinn samt.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
